Rauðir Úlfar
Rauðir úlfar og húðútbrot
Sjúklingar með rauða úlfa eru með mismikil húðvandamál.
Húðbreytingar koma oft fram þegar sjúkdómurinn er við það að blossa upp. Um það bil helmingur þeirra sem eru með rauða úlfa eru með fiðrildaútbrot í andliti. Hin rauðleitu útbrot fara yfir nefið og út á kinnarnar báðum megin og minnir þá útlitið stundum á fiðrildi. Útbrotin eru oftast mest áberandi snemma í sjúkdómsferlinu og fölna yfirleitt smám saman. Örsjaldan geta útbrotin skilið eftir sig varanlegar breytingar.
Margir sem eru með rauða úlfa eru með þurra og viðkvæma húð.
Vert að vita:
- Við útbrot er oft nauðsynlegt að hafa samband við húðlækni og/eða gigtarlækni til að fá einstaklingsbundna ráðgjöf og viðeigandi meðferð
- Margir þurfa að prófa sig áfram við að finna húðvörur sem passa. Val á húðvörum og snyrtivörum fer eftir húðgerð, einkennum og persónulegri reynslu.
- Yfir vetrartímann eru rakakrem oft nauðsynleg til að vernda húðina fyrir þurrki. Þá er mikilvægt að bíða fáeinar mínútur eftir að kremið fari vel inn í húðina áður en farið er út í mikinn kulda.
- Regluleg notkun sterakrema ætti að reyna að forðast þar sem þau geta leitt til þess að húðin verði mjög þunn og viðkvæm.
- Áfengi leiðir til útvíkkunar æða m.a. í kinnum og getur það leitt til meiri útbrota.
Praktísk ráð við rauðum úlfum og húðútbrotum
- Húðkrem og sápur án ilmefna reynast flestum best.
- Notkun sterkra leysiefna eða nudd með grófu handklæði getur komið húðútbrotum af stað. Best er að þurrka sér létt með mjúku frottehandklæði eftir þvott, sturtu og bað. Að skrúbba eða nota skrúbbukrem við að fjarlægja bólu- og baugahyljara eða snyrtivörur getur leitt til ertings í húðinni.
- Púður og kinnalit er hægt að setja yfir venjuleg rakakrem til að leyna húðútbrotum.
- Hjá snyrtisérfræðingi er hægt að fá ráðleggingar varðandi daglega förðun án þess að líta út fyrir að vera of förðuð/of farðaður.
- Margir þurfa að prófa sig áfram til að finna góðar snyrtivörur. Oft er boðið upp á prufuförðun hjá snyrtisérfræðingum eða í snyrtivöruverslunum.
- Ef húðin er þurr ætti að smyrja hana með rakakremi a.m.k. einu sinni á dag. Mundu eftir að nota húðkrem eða húðáburð eftir sturtu eða bað. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef maður hefur verið í vatni með klór í.
- Olíubað getur verið mýkjandi fyrir húðina. Hægt er að nota margar tegundir af baðolíum. Baðolíur sem ráðlagt er að kaupa í apóteki eiga einungis að innihalda mýkjandi olíur auk efnis sem gerir olíouna leysanlega í baðvatninu. Einnig eru til baðolíur í snyrtivöruverslunum. Öðrum finnst góður árangur af kaldpressaðri olívuolíu úr matvöruverslunum.
