Sumarlokun - Happdrætti

7. júlí 2017

Skrifstofa félagsins verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 10. júlí 2017 opnar aftur 9. ágúst. Eins er iðjuþjálfun lokuð á sama tíma. Sjúkraþjálfun félagsins verður opin hluta þessa tímabils. Beinn sími sjúkraþjálfunar er 530 3609. Ef lokað er kemur það fram á símsvara sjúkraþjálfunar.

Dregið hefur verið í sumarhappdrætti félagsins. Þeir sem vilja nálgast vinningaskrá finna hana undir „Happdrætti“ hér á síðunni. Flýtileiðin er hér til hægri. Neðst af gráu hnöppunum og á stendur Happdrætti. Vinningar verða afgreiddir þá skrifstofa opnar aftur þann 9. ágúst.

Gigtarfélagið