Opið fyrir umsóknir í Styrktarsjóð gigtveikra barna

19. janúar 2017

Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtveik börn og fjölskyldur þeirra til hinna ýmsu verka. Þar má meðal annars nefna styrk til kaupa á ýmsum hjálpartækjum, styrk upp í utanlandsferðir eða orlofshús og styrki fyrir hin ýmsu áhugamál svo eitthvað sé nefnt. 
Foreldrar gigtveikra barna (frá 0-18 ára), sem eru félagsmenn Gigtarfélags Íslands, geta sótt um í sjóðinn.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2017 og má nálgast umsóknareyðublaðið hér , á skrifstofu Gigtarfélagsins að Ármúla 5 eða á netfangið styrktarsjodurgigtveikrabarna@gmail.com

Læknisvottorð skal fylgja umsóknum.

Skil á umsóknum (og vottorðum) eru til skrifstofu Gigtarfélagsins eða á netfangið styrktarsjodurgigtveikrabarna@gmail.com .

Allir umsækjendur fá svar í byrjun mars og er úthlutun áætluð í lok þess sama mánaðar.