Opið hús á Gigtarmiðstöðinni sunnudaginn 12. október frá kl. 13:00 til 15:30
Opið hús verður á Gigtarmiðstöð Gigtarfélags Íslands sunnudaginn 12. október frá kl. 13:00 til 15:30. Sunnudagurinn 12. október er einnig alþóðlegur gigtardagur. Dagskráin hefst með stuttum erindum og í kjölfarið er spilað á húsnæðið og starfsemi stöðvarinnar kynnt. Dagskráin verður með eftirfarandi hætti.
13:00 Ávarp formanns Gigtarfélags Íslands, Dóra Ingvadóttir.
13:15 Jákvæð sálfræði og styrkleikar – Að lifa heilshugarlífi . Anna Jóna Guðmundsdóttir hjá Auðnu ráðgjöf, mun fjalla um jákvæðni, styrkleika og leiðir til að lifa „heilshugarlífi“.
13:45 Af hverju Stott-pilates fyrir gigtarfólk? Vilborg Hjaltalín sjúkraþjálfari og Stott-pilates kennari kynnir.
14:10 Starfsemi Gigtarmiðstöðvarinnar, vörukynningar og kaffi
Starfsemin: Kynnt verður sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, áhugahópar félagsins, hópþjálfun ofl.
Vörukynningar. Hjálpartæki ofl. munu Össur og Fastus, kynna. Janus kynnir hlýjan fatnað og ullarvörur og Andrá Coddooc og aðrar penzimvörur.
15:30 Lokið
Bjóðum alla velkomna. Kaffi verður á boðstólum.