Umsóknarfrestur í Þorbjargarsjóð hefur verið framlengdur til 15. október

15. september 2014

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest í Þorbjargarsjóð til 15. október nk.. Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtarfólk, einkum unga gigtarsjúklinga til náms. Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5, 108 Reykjavík, send rafrænt ef fólks óskar þess. Síminn er 530 3600  Áformað er að styrkveiting fari fram fyrir lok nóvember.