Ertu með hryggikt - 3 kvölda námskeð 24. sept., 2. okt. og 9. okt. 2014

28. ágúst 2014

Haldið verður 3ja kvölda námskeið um hryggikt þriðjudaginn 24. september, 2. október og 9. október í húsnæði félagsins Ármúla 5, annarri hæð.

Markmið námskeiðsins er að miðla aukinni þekkingu um sjúkdóminn og hvað hægt sé að gera til að stuðla að betri líðan. 

Fjallað verður m.a. um 

  • orsök, greiningu, meðferð og framtíðarhorfur, 
  • tilfinninga, félagslega og samfélagslega þætti, 
  • aðlögun að breyttum aðstæðum
  • mikilvægi og áhrif þjálfunar

Fyrirlesarar verða Árni Jón Geirsson gigtarsérfræðingur, Þórunn Haraldsdóttir sjúkraþjálfari, Eva-Marie Björnsson sjúkraþjálfari, Guðbjörg Guðmundsdóttir iðjuþjálfi. 

Nákvæmari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur

Verð: Fyrir félagsmenn í GÍ  kr. 8.200 kr. fyrir aðra kr. 10.300 kr.

Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig sem fyrst á skrifstofu félagsins í síma 530-3600 þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Nánari dagskrá námskeiðsins má sér hér