Fréttir og Tilkynningar
Fræðslufundur um réttindamál.
Mánudaginn 6. febrúar klukkan 18.00 verður fræðslufundur þar sem fulltrúar Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands verða með fræðslu um réttindamál sem varða fólk með gigt. Hér er um kjörið tækifæri til að fá upplýsingar um réttindi. Fræðslufundurinn verður í húsnæði Gigtarfélagsins að Ármúla 5, á 2.hæð.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á gigt@gigt.is eða í síma 530-3600.
Allir velkomnir
Gigtarfélag Íslands
