Fréttir og Tilkynningar

Hópþjálfunin hefst 1. september - Skráning hefst 23. ágúst

10.8.2010

Hópleikfimi Gigtarfélagsins hefst aftur miðvikudaginn 1. september, en skráning byrjar mánudaginn 23. ágúst. Við gerum ráð fyrir að dagskráin verði með hefðbundnu sniði. Boðið verður upp á vatnsleikfimi, almenna leikfimi í hádeginu og seinni partinn, karlahóp, jóga og pilates. Hægt verður að komast í einkatíma í Stott- pilatesi eins og í vor. Nýjung haustsins verður þjóðdansahópur. Þar sem kenndir verða Þjóðdansar frá ýmsum löndum s.s. frá Tyrklandi, Rúmeníu, Búlgaríu, og Skotlandi. Dansarnir eru mjög fjölbreytilegir og allir geta dansað þá þó þeir hafi aldrei stundað dans áður. Langflestir eru hópdansar eða hringdansar og því er ekki  nauðsynlegt að koma með dansfélaga.

Gigtarfélagið gerði í lok síðustu haustannar þjónustukönnun meðal leikfimiiðkendanna. Það er ánægjulegt fyrir okkur hversu fólk er almennt ánægt með leikfimina. Einnig fengum víð ýmsar gagnlegar ábendingar sem nýtast okkur vel í að reyna að gera betur og koma til móts við þarfir þeirra sem stunda leikfimina.


Stundaskrá haust 2010



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: