Fréttir og Tilkynningar
Styrktar- og minningarsjóður Þorbjargar Björnsdóttur
Stjórn styrktar- og minningarsjóðs Þorbjargar Björnsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr sjóðnum fyrir árið 2010. Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka, einkum unga gigtarsjúklinga til náms. Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, 108 Reykjavík. Síminn er 530 3600.
Umsóknarfrestur er til 15. september nk. Áformað er að styrkveiting fari fram um miðjan október.
