Fréttir og Tilkynningar

Ísafjörður - Vestfirðir - Stofnfundur deildar - Fræðsla

3.6.2010



Gigtarfélag Íslands boðar til stofnfundar fyrir deild félagsins á Vestfjörðum. Fundurinn verður miðvikudaginn 9. júní í fundarsal Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði, kl. 20:00.  
 
Fundurinn hefst með fræðsluerindi um gigtarsjúkdóma og lyfjameðferð. 
 
Dagskrá fundarins verður:
 
20:00   Gigt og lyfjameðferð, Elínborg Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur á
                        gigtardeild Landspítala flytur og svarar fyrirspurnum.
20:45   Kaffihlé
21:00   Hlutverk Gigtarfélagsins, Emil Thóroddsen framkvæmdarstjóri GÍ
21:25   Stofnun deildar á Vestfjörðum.
21:45   Fundi slitið
 
 
Á fundinum verður kosin stjórn sem starfar til fyrsta aðalfundar deildarinnar. Þeir sem áhuga hafa á að starfa með deildinni eru beðnir að hafa samband við Svanlaugu  Guðnadóttur hjúkrunarfræðing.  Póstfang hennar er: isafjordur@ismennt.is 
 
Hlutverk deildarinnar er að efla samstöðu gigtarfólks í landshlutanum, hafa frumkvæði að fræðslu og öðru því sem eflir fólk með gigtarsjúkdóma á svæðinu.
 


Allar frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins í síma 530 3600
 
Á fundinn eru allir velkomnir



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: