Fréttir og Tilkynningar
Langar þig að dansa? Nú er tækifærið!
Hópþjálfun Gigtarfélagsins býður nú upp á nýtt námskeið: “Þjóðdansar frá ýmsum löndum" Námskeiðið verður 4 skipti á þriðjudögum frá kl. 18:10 til 19:10. Haldið í húsnæði Gigtarfélagsins Ármúla 5. á 2. hæð. Það hefst 13. apríl og stendur til 4. maí.
Kennari er Gwendolyn Cordray sjúkraþjálfari sem hefur dansað og kennt þjóðdansa frá unga aldri. Þjóðdansarnir eru frá hinum ýmsu löndum, sem dæmi má nefna Tyrklandi, Rúmeníu, Búlgaríu, Albaníu, Skotlandi, og Póllandi. Dansarnir eru mjög fjölbreytilegir og allir geta dansað þá þó þeir hafi aldrei stundað dans áður. Langflestir eru hópdansar eða hringdansar og því er ekki nauðsynlegt að koma með dansfélaga. Dans er góð leið til að halda sér í formi !
