Fréttir og Tilkynningar

Aðalfundur Norðurlandsdeildar Gigtarfélags Íslands 9. febrúar

1.2.2010

Þriðjudaginn 9. febrúar nk. boðar Norðurlandsdeild Gigtarfélags Íslands til aðalfundar á Akureyri. Fundurinn verður haldinn kl. 20.00 á Hótel KEA.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Unnur Pétursdóttir, sjúkraþjálfari og formaður deildarinnar, halda erindi sem hún nefnir:

„Áhrifaþættir þjálfunar hjá fólki með slitgigt.

Hvað hvetur, hvað letur? ”

Erindið er afrakstur meistararannsóknar Unnar við HA, sem unnin var að hluta til á Eyjafjarðarsvæðinu.

Við hvetjum bæði félagsmenn og aðstandendur til að mæta.

Vinsamlega athugið að kaffiveitingar verða seldar á staðnum.

Athugið:

Rétt er að geta þess að tveir stjórnarmeðlimir hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Því óskum við eftir tveimur öflugum einstaklingum sem eru tilbúnir að leggja stjórninni lið. Umfangið er ekki mikið, haldinn er einn stjórnarfundur að hausti en að öðru leyti fara samskipti og skipulagning fram í gegnum tölvupóst. Ef áhugi er fyrir hendi, vinsamlegast látið vita af ykkur á netfangið unnurpe@internet.is .

Stjórnin.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: