Fréttir og Tilkynningar
Birtufólkið kemur saman 12. Janúar nk. kl. 14:00
Nýtt ár hefst hjá Birtufólkinu 12. janúar nk. Hópurinn kemur saman kl. 14:00 á 2. hæð í fundarherbergi félagsins að Ármúla 5. Á fundinum í desember var ákveðið að koma snemma saman á nýju ári, koma með hugmyndir að gjöfum fyrir næstu jól. Verið því ekki of fljót á ykkur að setja jóladótið niður í kassa, komið með allt það sem ykkur dettur í hug að aðrir hafi áhuga á að gera og gefa. Fundurinn er rífleg klukkustund.
Allir eru velkomnir
Með þakklæti fyrir síðastliðið ár.
Lena M. Hreinsdóttir
