Fréttir og Tilkynningar
Birtufólkið - 10. nóv. nk. kl. 14.00
Birtufólkið kemur næst saman þriðjudaginn 10. nóvember nk. á Gigtarmiðstöðinni að Ármúla 5, kl. 14.00 á 2. hæð í fundarsal.
Nú er ætlunin að skoða “Scrap book” eða úrklippualbúm. Margir eiga gamlar myndir sem eru persónuleg verðmæti og þykir vænt um. Gaman er að skreyta í kringum þær og gera að fallegum listaverkum úr pappír og nýtanlegu drasli. Þá öðlast þær nýtt líf.
Leitað verður hugmynda um hvernig hægt er að gera þetta. Það eina sem þarf að koma með er skæri og ef þið eigið límband sem límir báðumegin þá væri það gott.
