Fréttir og Tilkynningar
Fræðslufundur með aðstandendum 27. okt. kl. 19:30
Að lifa með gigt - Gigtarmiðstöðin Ármúla 5 . Að lifa við langvinna sjúkdóma er meira en að segja það. Það er mikilvægt fyrir gigtarsjúklinga að makar og aðstandendur hafi þekkingu og skilning á helstu einkennum og fylgikvillum sem sjúkdómunum fylgja. Þriðjudaginn 27. október kl. 19:30 stendur Gigtarfélag Íslands fyrir fræðslufundi að Ármúla 5 í Reykjavík á 2. hæð, þar sem ..
Elínborg Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítala mun fjalla um almenn einkenni gigtar og fylgikvilla eins og þreytu, verki og svefntruflanir.
Inga Hrefna Jónsdóttir sálfræðingur á Reykjalundi mun fjalla um andlega fylgikvilla eins og óöryggi, kvíða, depurð og þunglyndi.
Við hvetjum allt gigtarfólk að bjóða mökum og aðstandendum að koma á fyrirlesturinn. Allir eru velkomnir.
Gigtarfélag Íslands
