Fréttir og Tilkynningar

Fyrirlestrar um atvinnu- og tryggingamál. 12. október á Grand Hótel kl.17:20

7.10.2009

Í tilefni af alþjóðlega gigtardeginum, sem er mánudaginn 12. október næstkomandi, stendur Gigtarfélag Íslands fyrir fræðslufundi um atvinnu og tryggingamál á Grand Hótel við Sigtún í salnum Gullteigi A, kl. 17:20. Þema alþjóðlega gigtardagsins er um alla Evrópu og víðar „vinnum saman”.

Fyrirlesarar verða:

  • frá Vinnumálastofnun; Þórdís Guðmundsdóttir og mun hún kynna úrræði og samninga sem eru í boði fyrir gigtarfólk.
  • frá Sjúkratryggingum Íslands;
    • Margrét Arnheiður Jónsdóttir - tryggingamál
    • Ingibjörg Valsdóttir – hjálpartæki
    • Ingveldur Ingvarsdóttir – sjúkraþjálfunarmál

Allir eru velkomnir. 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: