Fréttir og Tilkynningar

4. Gigtargangan - 8. október - Undir kjörorðinu

2.10.2009

Fimmtudaginn 8. október mun gigtarfólk ganga með fjölskyldum sínum og vinum frá Lækjartorgi upp á Skólavörðuholt undir kjörorðinu "Vinnum saman" en Evrópsku gigtarfélögin hafa það sem kjörorð á alþjóðlegum gigtardegi 12. október í ár.

Gigtarfólk stendur fyrir dugnað, einurð og útsjónarsemi. Gigtarfólk er góður starfskraftur. Úrræði við gigtarsjúkdómum er fjárfesting. Hvergi á Norðurlöndunum er atvinnuþátttaka gigtarfólks meiri en á Íslandi. 

Við  skorum á sem flesta að  ganga með okkur. 

 

Við  göngum til að vekja athygli á því.. 

  • að  gigtarfólk er góður starfskraftur.
  • að snemmgreining gigtarsjúkdóma skiptir öllu máli.
  • að gott aðgengi að góðu heilbrigðiskerfi skiptir öllu
  • 10 til 14 börn greinast með alvarlegan gigtarsjúkdóm á ári.

 

Gigtargangan 

17:00 - Byrjum að safnast saman á Lækjartorgi

17:20 - Upphitun fyrir gönguna

17:30 - Gangan hefst, gengið verður upp Bankastræti og Skólavörðustíg

18:00 - Gangan endar við Hallgrímskirkju.

18:10 - Hlustað á orgelspil í Hallgrimskirkju  

Við  mælum með að þeir sem erfiðast eiga með  gang komi inn í gönguna við Bergstaðastræti. 

  • Við  viljum atvinnu og samfélag fyrir alla.

 

Allar frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu GÍ  í síma 530 3600 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: