Fréttir og Tilkynningar
Birtufólkið kemur saman 13. október kl. 14:00
Þann 13. otkóber nk. fer hópurinn af stað aftur, en eins og síðastliðinn vetur kemur hópurinn saman í fundarsalnum að Ármúla 5 á 2. hæð kl:14:00.
Nú segjum við frá sumrinu, komum með handavinnuna, ræðum og sýnum hinum. Auk þess munum við ræða á þessum fyrsta fundi hvað við viljum hafa á dagskrá í vetur. Ætlunin er að hittast annan þriðjudag í mánuði eins og í fyrra, segir í auglýsingu frá Lenu M Hreinsdóttur.
Hópurinn mun hittast í vetur annan þriðjudag í hverjum mánuði eins og í fyrra.
