Fréttir og Tilkynningar
Við minnum á umsóknarfrest í Þorbjargarsjóð
Við minnum á að umsóknarfrestur um styrk í ár rennur út 15. september næst komandi. Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka, einkum unga gigtarsjúklinga. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, IS-108 Reykjavík. Hægt er að fá þau send á rafrænu formi. Áformað er að styrkveiting fari fram um miðjan október. Allar frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins í síma 530 3600.
