Fréttir og Tilkynningar
Fésbókarhópur um vefjagigt.
Í byrjun nóvember á síðasta ári var stofnaður fésbókarhópur (facebook group) undir nafninu „vefjagigtin”. Allir geta verið með í hópnum, hann er jafnt fyrir sjúklinga, aðstandendur og aðra sem hafa áhuga og vilja til að sýna stuðning. Hópurinn hefur hittst við mjög góðar undirtektir . Ákveðið hefur verið að í vetur muni hópurinn koma saman einu sinni í mánuði. Staður og stund verða auglýst síðar.
Allar frekari upplýsingar munu verða settar á síðu fésbókarhópsins. Þá verða þær sendar meðtölvupósti til þeirra sem eru á póstlista yfir meðlimi hópsins, sem og settar hér áheimasíðuna í texta undir áhugahópar, vefjagigtarhópur.
