Fréttir og Tilkynningar
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka - Áheitahlaup - Góður málstaður
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður þann 22. ágúst nk., á laugardaginn. Umgjörð hlaupsins og framkvæmd er til fyrirmyndar eins og áður.
Áheit á "okkar hlaupara"
Við viljum vekja athygli á því að þeir sem hlaupa í maraþoninu geta valið að hlaupa í þágu ýmissa góðgerðafélaga. Íslandsbanki heitir sérstaklega á starfsmenn sína og viskiptavini, en auk þess geta vinir og velunnarar hlauparanna/málstaðarins einnig heitið á þátttakendur á heimsíðu hlaupsins og lagt þannig sitt af mörkum og eflt hlauparanna, og styrkt málstaðinn. Slóðin á áheit er hér.
Þegar farið er inn á heimasíðuna er hægt að sjá hverjir hlaupa fyrir hvaða málstað, hvaða félög. Þar má sjá öflugan hóp sem hleypur fyrir málstað gigtsjúkra, Gigtarfélag Íslands
Áheit renna til Gigtarmiðstöðvarinnar að Ármúla 5 sem er mikilvægur grunnur að starfsemi félagsins. Við hvetjum alla til að skoða heimasíðu marathonsins og skoða þann möguleika að heita á "okkar hlaupara". Þá er upplagt að benda öðrum (s.s. vinum og vinnufélögum) á þennan góða möguleika á stuðningi við góðan málstað og eflt þannig það frábæra fólk sem hleypur í okkar nafni.
Slóðin á hlaupið er: www.marathon.is
Gigtarmiðstöðin að Ármúla 5 er miðstöð starfsemi Gigtarfélagsins. Starfið miðast við félagsstarf og forvarnir í víðum skilningi. Á miðstöðinni má finna viðhaldsendurhæfingu (sjúkra- og iðjuþjálfun), skipulagða leikfimi, gigtarlækni, fræðslu og ráðgjöf fyrir fólk með gigt og aðstandendur þeirra. Bein leiðbeining og ráðgjöf er vaxandi þáttur í starfseminni.
