Fréttir og Tilkynningar

Þorbjargarsjóður - Umsóknarfrestur er til 15. sepember

30.6.2009

Við minnum á að umsóknarfrestur um styrk úr Þorbjargarsjóði er til 15. september. Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka, einkum unga gigtarsjúklinga til náms.

Styrktar- og minningarsjóður Þorbjargar Björnsdóttur er í vörslu Gigtarfélags Íslands og var settur á fót að frumkvæði fjögurra kvenna, þeirra Helgu Björnsdóttur, Elínar Hannam, Oddnýjar Gísladóttur og Kristínar Pétursdóttur í Reykjvík. Grunnstoðir sjóðsins eru stofngjafir frá þeim til minningar um Þorbjörgu Björnsdóttur, en sjóðurinn hefur og notið framlaga frá öðrum á undanförnum árum. Sjá frekari upplýsingar hér á síðunni undir /Um Gigtarfélagið/Sjóðir/Þorbjargarsjóður

Stefnt er að því að veita styrki um miðjan október, nærri alþjóðlega gigtardeginum 12. október.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: