Fréttir og Tilkynningar

Næsta skref Birtufólksins

5.6.2009

Birtufólkið mun hittast í kaffihúsinu í Grasagarðinum í Laugardal þann 9. júní næstkomandi kl. 14.00. Í vetur hefur verið spjallað, hlegið, hlustað, lesið, prjónað, saumað, fræðst, og miðlað. Vinskapur myndast og endurnýjaður. Ætlunin er að halda áfram næsta vetur, það verður auglýst síðar. Vonandi sjáum við fleiri þá.

 Lena M Hreinsdóttir þakkar fyrir góðar undirtektir í vetur. Gigtarfélagið þakkar henni einnig fyrir frumkvæði hennar og elju við að koma hópnum á og halda starfinu gangandi.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


Fréttir og Tilkynningar

 

Útlit síðu: