Hópleikfimin er að hefjast

29. ágúst 2017

Hópþjálfun félagsins hefst 4. september (allir sundtímar), skráning í hópa er hafin. Framboð á tímum er nær sama og síðastliðið haust. Boðið er upp á þjálfun í sundlaug og sal. Í sal má nefna létta leikfimi, Stott-Pilates, jóga og leikfimi karla. Allir tímar eru tvisvar í viku. Í sundi eru mismunandi erfiðir tímar einnig tvisvar í viku. Athugið hóparnir byrja á mismunandi tímum. Skiptum greiðslum. Skráning er á skrifstofu félagsins í síma 530 3600. Stundatöflu haustsins má finna hér.