Gigtarfélagið yfir jól og áramót

21. desember 2017

Gigtarfélag Íslands óskar öllum Gleðilegra jóla, góðs og farsæls komandi árs. Þökkum öllum fyrir velvild og stuðning á árinu sem er að líða. Skrifstofa félagsins er lokuð frá og með 22. desember og opnar aftur þriðjudaginn 2. janúar. Eins er iðjuþjálfun félagsins lokuð milli jóla og nýárs og opnar sama dag.  Varðandi sjúkraþjálfun er best að hafa beint samband við sjúkraþjálfara. Hópþjálfun á vegum félagsins hefst 8. janúar. Stundatafla verður birt í byrjun janúar.