Verkjalaus eftir kortisonsprautu?

Spurning:

Hæ doksi. Ég hef spurningu sem mig langar mikið að fá svar við. Í mörg ár hef ég verið að stríða við gigt (aðallega slitgigt) og hef fengið í gegnum tíðina hin ýmsu lyf?.enn það hefur ekki borið mikinn árangur. Svo skeði það síðastliðið haust að ég var ALVEG verkjalaus í nokkrar vikur? mér til mikillar undrunar. Enn það var þó of gott til að vera satt því verkirnir komu aftur. Ég og fjölskylda mín lögðum hausa í bleyti til að reyna að finna orsökina á þessu. Svo eftir miklar vangaveltur þá fundum við út úr því að það eina sem hafði verið öðruvísi í mínu lífi var það, að eftir óhapp í Þýskalandi, þar sem ég var stunginn af geitungi í munninn, fékk ég lyf sem ég hef ekki fengið áður. Á slysavarðstofunni fékk ég Cortisoni sprautað í æð. Getur það verið að þetta CORTISON hafi valdið því að ég var verkjalaus í 6-8 vikur. Það myndi gleðja mig mikið ef þið viljið vera svo vænir að senda mér línu um þetta.

Með fyrirfram þökk

Svar:

Já, það er möguleiki að kortison hafi haft þessi áhrif þar sem kortison hefur bólgueyðandi áhrif.

Með kveðju, Gigtarlínan