Spurningar um Enbrel og bólgueyðandi lyf

Spurningar:

Mig langar að spyrja um lyfið Enbrel, hvort það sé bara notað hér á landi við
liðagigt? Heyrði frá Bandaríkjum að það væri farið að nota við allri gigt og
reyndist vel á þeim sem það þyldu og fengu engar aukaverkanir, á ekkert að
athuga þetta hér? Hvaða gigtarlyf hafa reynst best eftir að síðustu lyfin voru tekin af markaði?

Kveðja

Svar:

Enbrel er svokallað bremsulyf. Í dag eru milli 60 – 80 einstaklingar sem nota lyfið Enbrel á Íslandi með góðum árangri í flestum tilfellum. Fjölgunin hefur orðið mikil síðustu 2 árin þar sem framleiðslutakmarkanir voru á lyfinu í byrjun, en hafa nú verið leystar. Það má nefna að fyrstu árin höfðu Íslenskir gigtlæknar aðeins leyfi fyrir lyfinu fyrir 6 einstaklinga. Lítið hefur borið á aukaverkunum en nokkrir hafa þó verið látnir hætta á lyfinu vegna ofnæmisviðbragða og þröskuldurinn hafður lágur í því mati.

Enbrel er notað af gigtasérfræðingum hér sem meðferð við ýmsum tegundum gigtar og má þar nefna iktsýki, psoriasisgigt, hryggikt ofl. Í byrjun voru það þeir ein­stakl­ingar sem verst voru farnir af iktsýki sem fóru á lyfið, en í dag er valið í höndum gigtarsérfræðinganna í samráði við sjúklinginn. Remicade er oft fyrsti valkosturinn þar sem það hefur reynst vel hjá flestum (í dag um 180 manns) og er jú ódýrari kostur að velja.

Gigtarlyf sem tekin voru af markaði, voru aftur á móti ný tegund bólgueyðandi lyfja eða svokallaðir cox-2 hemjarar. Vioxx var eitt þeirra lyfa. Þegar það var tekið af markaði stóð eftir stórt skarð hjá mörgum gigtarsjúklingum þá sérstakega slitgigtar­sjúklingum sem notuðu lyfið með góðum árangri án aukverkana. Það sem hefur komið í staðinn fyrir þetta eru aðrir cox-2 hemjarar eins og Celebra og Arcoxia. Þessi lyf eru notuð að vel athuguðu máli þeirra sérfræðinga sem ávísa lyfjunum. 

Með kveðju, Gigtarlínan